HVAÐ, HVERNIG OG HVENÆR?
Hvernig er stíllinn ykkar?
Það skiptir okkur miklu máli að viðskiptavinir okkar þekki stílinn okkar og hvernig við vinnum því ljósmyndun er smekksatriði og ólíkt milli fólks hvað því finnst flott. Myndirnar okkar eru í listrænum ,,documentary stíl,, Við reynum eftir fremsta megni að fanga augnablikið, ná tengingunni á milli ykkar og gestanna ykkar og ná augnablikunum á milli augnablikanna, hlátrinum og grátinum. Í pakkanum okkar eru svo auðvitað líka brúðkaupsmyndir þar sem við förum og tökum myndir af brúðkaupshjónum á völdum stað sem og hópamyndir af fjölskyldu/vinum ef þess er óskað.
Hvað fæ ég margar myndir
Það fer allt eftir því hvaða pakka þið pantið. (sjá nánar undir pakkar (hlekkur)
Við leggjum þó alltaf meiri áherslu á gæði en magn.
Meira um albúm, fine print og ubs
Þið fáið allar myndirnar ykkar afhentar á UBS kubb. Fjöldi mynda fer eftir því hvaða brúðkaupspakka þið kaupið (sjá ólíka brúðkaupspakka (linkur)
Þá er hægt að kaupa prent sem við afhentum á hágæða möttum ljósmyndapappír og í kartoni.
Við leggjum mikinn metnað í brúðkaupsbækurnar okkar sem prentaðar eru á hágæða pappír og hægt er að fá með eða án forsíðu. Það er einstaklega gaman að fá daginn innbundinn í bók sem er gaman að fletta í uppí sófa í rólegheitum og þannig upplifa daginn aftur og aftur. (hér getið þið skoðað sýnishorn af bókunum okkar).
Hvernig er ferlið?
Við viljum endilega hitta ykkur áður en við mætum í brúðkaupið, fara yfir daginn, hvers ber að vænta og svo framvegis. Á þessum fundi hvort sem við hittum ykkur í persónu eða á skype fundi gefst ykkur tækifæri á að láta okkur vita ef þið eruð með einhverjar sérstakar óskir, t.d hvaða hópamyndir þið viljið, ef þið hafið einhverjar óskir um sérstakan stað sem þið viljið láta mynda ykkur á og svo.fr. Við erum svo alltaf búnar að skoða aðstæður sem veislan og giftingin fer fram áður en að stóra deginum kemur og á Íslandi verðum við alltaf að vera með plan B ef veðrið leyfir okkur ekki útitöku.
Hvenær fæ ég myndirnar mínar afhentar:
Í hvaða upplausn er myndunum skilað, er watermark eða get ég prentað út sjálf/ur?