VIÐ
VIÐ
Ert þú að leita að brúðkaupsljósmyndara?
Við, Ellen og Þórunn erum vinkonur og ljósmyndarar og tökum að okkur að mynda brúðkaup, trúlofunar- og paramyndir bæði hérlendis sem og erlendis. Við kynntumst í ljósmyndanámi og komumst að því að okkur fannst rosalega gaman að vinna og hlægja saman og höfum gert ótal verkefni þar sem við njótum styrkleika hvorrar annarrar.
Við elskum vinnuna okkar, fátt er meira gefandi en að segja sögur og fanga augnablik. Þess vegna er svo skemmtilegt að mynda brúðkaup.
Við leggjum metnað okkar í að pakka inn stemmningunni, gleðinni og ástinni þann dag sem við eyðum með ykkur í fallega bók eða prent sem á eftir að ylja ykkur um ókomin ár.
Endilega skoðið ólíka brúðarmyndatöku pakka sem í boði eru hér
Og ef þið hafið einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband: info@ellenandthorunn.comHlökkum til að kynnast ykkur
Með hlýju
Ellen og Þórunn